Njörvasund 21, 104 Reykjavík (Vogar)
76.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
100 m2
76.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
38.760.000
Fasteignamat
28.800.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsetta hæð ásamt bílskúr á vinsælum stað í Sundunum. Helst í skiptum fyrir minni eign í lyftuhúsi og stæði í bílakjallara. 

Lýsing eignar: Gott aðgengi er að húseign og sérbílastæði fyrir framan bílskúr eignar. 
Aðalhæð: Gengið er upp steyptar tröppur og komið inn í sameiginlegan inngang að íbúð. Fyrir framan inngang íbúðar er flísalögð forstofa.
Komið er inn í rúmgott parketlagt miðrými íbúðar.
Eldhús er á hægri hönd innrétting með efri og neðri skápum eldavél, háfur og flísalagt er á milli skápa.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi með útgengi út á suðursvalir. Stór gluggi er í stofu sem setur svip á rými.
Svefnherbergi rúmgott ásamt góðum innbyggðum rúmgóðum skáp.
Baðherbergi flísalagt, sturta, upphengt salerni og nett innrétting með skápum undir vaski og speglaskáp þar fyrir ofan. 
Geymsla rúmgóð upphituð undir útistiga.

Bílskúr er 25,6 fm samkvæmt fasteignamati. Innangengt er einnig um hurð frá garði sunnanmegin við skúr. Tenging er fyrir þvottavél, heitt og kalt vatn í bílskúr.
Sérbílastæði er fyrir framan bílskúrinn.


Þak viðgert fyrir ca.15 árum strompur fjarlægður og sett nýtt aluzink járn á þak.
Ný rafmagnstafla í húsi ásamt endurnýjun pípulagna að hluta í kjallara.
Endurnýjaðar lagnir undir húsi vor 2023.

Vel staðsett eign í vinsælu grónu hverfi í Reykjavík þaðan sem stutt er í allar áttir.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 




 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..